Ferðir á næstunni
Viðburður
- Viðburður:
- Á Eyjafjallajökul úr Þórsmörk - Ferðir FÍ
- Dagsetning:
- 25.05.2010
Lýsing
Á Eyjafjallajökul úr Þórsmörk - Ferðir FÍ
Númer: D-10 - A
Dagsetning: 25.5.2010
Brottfararstaður: Jökulgöngur úr Þórsmörk
Viðburður: Á Eyjafjallajökul úr Þórsmörk
Erfiðleikastig:
Lýsing: 25. maí - 8. júní
Boðið er upp á jökulgöngur úr Þórsmörk á hverjum degi með fararstjóra/skálaverði þegar veður leyfir frá 25. maí - 8. júní. Farin er Hátindaleið frá Stakki upp að Hátindum og þaðan upp á jökul og svo vestur eftir hábungu jökulsins alla leið á Innri-Skolt. Einstakt útsýni yfir öskju Eyjafjallajökuls og jökulfossana Gígjökul og Steinholtsjökul. 10 km hvor leið og 1600 m hækkun. Gengið er í línu undir stjórn fljálfaðra fararstjóra. Fjöldi þátttakenda: 8 -12 með hverjum leiðsögumanni. Jöklabúnaður s.s. broddar og ísaxir.
Fyrir fólk í góðu formi sem vill takast á við nýtt og spennandi verkefni.
Verð kr. 10.000 / 13.000
Innifalið er fararstjórn og búnaður.
Hér er um nýmæli að ræða á dagskrá Ferðafélagsins. Ganga á Eyjafjallajökul neðan úr Þórsmörk er talsvert krefjandi verkefni því leiðin er 18-19 km. löng og hækkun á leiðinni í kringum 1300 metrar. Þátttakendur þurfa því að vera í sæmilega góðu líkamlegu formi og vanir fjallgöngum.
Alkunna er að íslenskir jöklar hopa og þynnast með hverju ári sem líður og að sama skapi verða ferðir um þá áhættusamari. Eyjafjallajökull er brattur og sprunginn en Ferðafélag Íslands setur öryggi farþeganna ávallt í efsta sæti og fararstjórar félagsins eru reyndir jöklafarar sem hafa fengið sérstaka þjálfun í öryggismálum
EventList powered by schlu.net