Síðast liðinn laugardag, þann 15. júní, fóru tvær vaskar úr HSÞ, Elín Sigurborg framkv.stjóri HSÞ og Birna Davíðsdóttir í stjórn HSÞ, upp á "Vindbelg" með gestabókarkassa UMFÍ og komu honum fyrir á besta stað. Eins og sjá má á þessum myndum, sem Birna tók, þá var veðrið eins og best var á kosið - en því fylgdi hvimleiður ófögnuður sem Mývatnssveit er vel þekkt fyrir - rykmý !! Við mikinn hildarleik tókst görpunum að komast í gegnum rykmýs-strókana og upp í hlíðar fjallsins, en þar fór vindur að blása og nánast allar flugur út í veður og vind. Útsýnið af toppi vinbelgs er gífurlega skemmtilegt - vötn og tjarnir, "gervigígar" og fjöll í fjarska allt í kring.
HSÞ hvetur alla á sínu starfsvæði, sem er allt frá Grenivík til Bakkafjarðar, til þess að skreppa í Mývatnssveitina og í Öxarfjörðinn og taka eina létta fjallgöngu, skrá sig í gestabók UMFÍ, sem í kössunum er, og taka þannig þátt í almenningsverkefni UMFÍ.
Að hausti er síðan dregið úr nöfnum þátttakenda og veitt eru útivistarverðlaun. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni www.ganga.is
Almenningsíþróttanefnd HSÞ