Hættu að hanga!
UMSB stendur fyrir skógargöngum
Ungmennasamband Borgarfjarðar stendur í sumar fyrir þremur skógargöngum en sú fyrsta var farin um Fannhlið.
Önnur gangan verður fimmtudagskvöldið 21. júlí kl. 20:00 um Skorradal undir leiðsögn Friðriks Aspelund og Birgis Haukssonar, sem segja frá svæðinu. Lagt verður upp frá Stálpastöðum.
Þriðja gangan verður fimmtudagskvöldið 28. júlí kl. 20:00 um Skógarreitinn á Lundi í Lundarreykjadal auk skógarreits við gamla félagsheimili UMF. Dagrenningar undir leiðsögn Jóns Gíslasonar, mæting við Lundarkirkju. Fólk er hvatt til að mæta og njóta smá skógargangna.