Í dag föstudaginn 25. júní verður gengið Borgarfjörður – Brúnavík – Breiðuvík þessi ganga er liður í verkefninu Helgi á göngu. Það er Ungmennafélag Borgarfjarðar, í samstarfi við Ungmennafélag Íslands og Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands, sem standa fyrir verkefninu Helgi á göngu. Á Borgarfirði teygir verkefnið sig yfir hálfa næstu viku.
Gengið verður undir leiðsögn frá Kolbeinsfjöru í Borgarfirði til Brúnavíkur um Brúnavíkurskarð. Í Brúnavík verður einstök líparítfjaran skoðuð. Frá Brúnavík er haldið í Súluskarð, gengið ofan Hvalvíkur og Kjólsvíkur og áfram til Breiðuvíkur.
Gist verður um nóttina í Breiðuvíkurskála. Kvöldvaka, tónlist og grill um kvöldið þar sem hver og einn kemur með grillvarning fyrir sig. Öllum er velkomið að taka þátt í þessari kvöldstund og er aðgangur ókeypis. Drykkir verða seldir í Breiðuvík fyrir þá sem vilja. Boðið verður upp á trússflutning til og frá Breiðuvík.
Hér að neðan koma myndir frá fyrstu göngunni í verkefninu en þá var gengið upp á Urðarhólavatn. Skyggni í göngunni var lítið og leiddi Hafþór Snjólfur Helgason göngumenn, sem voru á þriðja tug, áfram eftir GPS tæki.