Helgi á göngu
Helgi á göngu er verkefni til minningu um gönguforkólfinn og ungmennafélagann Helga Magnús Arngrímsson. Verkefnið gengur útá að skipulagðar gönguferðir verða á vegum UMFÍ tiltekna helgi þeir dagar sem verða tileinkaðir verður Helga í ár er 23. til 27. júní. Göngur verða skipulagðar víðs vegar um landið á einhverri af þeim gönguleiðum sem merktar hafa verið á vegum hreyfingarinnar.
Þau héraðssambönd sem verða með m.a með göngur eru UÍA og UMSB.
Ungmennafélag Borgarfjarðar, í samstarfi við Ungmennafélag Íslands og Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands, standa fyrir verkefninu Helgi á göngu. Á Borgarfirði teygir það sig yfir hálfa næstu viku.
Miðvikudagur 23. júní
Sólstöðuganga á Svartfell (510m.y.s.)
Lagt af stað frá Breiðuvíkurafleggjara austan Fjarðarár kl 22:00 og gengið á Svartfell
Frí ganga undir leiðsögn heimamanna og allir velkomnir.
Eftir göngu er opið hús í Fjarðarborg. Lifandi tónlist og eitthvað gott með kaffinu.
Fimmtudagur 24. júní
Stapavík - Gönguskörð - Njarðvík
Lagt af stað frá Unaósi kl 14:00 og gengið út með Selfljóti að Stapavík en þar er gömul uppskipunarhöfn.
Þeir sem vilja geta gengið sömu leið til baka en leiðsögn verður um gömlu þjóðleiðina til Njarðvíkur og Borgarfjarðar um Gönguskörð.
Föstudagur 25. júní
Borgarfjörður – Brúnavík – Breiðuvík
Gengið undir leiðsögn frá Kolbeinsfjöru í Borgarfirði til Brúnavíkur um Brúnavíkurskarð. Í Brúnavík verður einstök líparítfjaran skoðuð. Frá Brúnavík er haldið í Súluskarð, gengið ofan Hvalvíkur og Kjólsvíkur og áfram til Breiðuvíkur.
Gist verður um nóttina í Breiðuvíkurskála. Kvöldvaka, tónlist og grill um kvöldið þar sem hver og einn kemur með grillvarning fyrir sig. Öllum er velkomið að taka þátt í þessari kvöldstund og er aðgangur ókeypis. Drykkir verða seldir í Breiðuvík fyrir þá sem vilja. Boðið verður upp á trússflutning til og frá Breiðuvík.
Laugardagur 26. júní
Breiðuvík – Borgarfjörður, um Víknaheiði
Gengið inn dalinn í Breiðuvík og yfir Víknaheiði sem þykir einn fegursti fjallvegur á Íslandi. Í botni Borgarfjarðar er gengið framhjá Gæsavötunm, og um Urðarhóla við Urðarhólavatn
Tónleikar um kvöldið í Fjarðarborg með valinkunnum listamönnum.
Sunnudagur 27. júní
Létt skoðunarferð um Bakkgerðisþorp undir leiðsögn kl 14:00
Jónsmessuganga UMSB verður í dag, 23. júní kl. 20:00. Gengið verður á Varmalækjamúla. Boðið í kaffi og meðlæti að veitingahúsinu í Fossatúni að lokinni göngu. Mæting á melunum fyrir ofan Fossatún.
Frekari upplýsingar um göngurnar er hægt að fá í síma
862 6361 og á vefnum www.umsb.is