Hættu að hanga!
HSÞ gengur á Hverfjall
HSÞ gengur á Hverfjall 5. júní kl 11:00
Laugardaginn 5. júní stendur Mývetningur, íþrótta- og ungmennafélag fyrir fjölskyldugöngu á Hverfjall í Mývatnssveit. Gangan er liður í verkefninu Fjölskyldan á fjallið sem er landsverkefni innan UMFÍ . Hverfjall er eitt af tveimur fjöllum HSÞ í ár en hitt fjallið er Óttar í Þistilfirði.
Gangan á Hverfjall hefst við bílaplanið við rætur fjallsins kl.11:00. HSÞ hvetur alla Þingeyinga til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni og njóta fagurrar náttúru með göngu á hin ýmsu fjöll héraðssambandanna um landið í sumar. Nánari upplýsingar eru á www.ganga.is.