Fjölskyldudagur UMFÍ og ganga á Miðfell á laugardag
- Íþróttaálfurinn mætir á staðinn
Fjölskyldudagur UMFÍ verður haldinn við rætur Miðfells í Hrunamannahreppi á laugardag og hefst dagskrá kl. 13.00. Dagurinn verður haldinn í samvinnu við HSK.
Á þessum degi verður skipulögð dagskrá með skemmtiatriðum fyrir alla fjölskylduna. Meðal þeirra sem koma fram á deginum er Kristmundur vinningshafi söngvakeppni framhaldskólanna, Íþróttaálfurinn og Solla stirða.
Deginum líkur með göngu á Miðfell sem er eitt af tveimur fjöllum sem HSK hefur tilgreint í verkefninu Fjölskyldan á fjallið. Farið verður með póstkassa upp á fjallið á þessum degi og fólk hvatt til að skrifa í gestabókina.
Til að komast að Miðfelli af þjóðveg 1 er ekið inn á Skeiða- og Hrunamannaveg nr. 30 við Skeiðavegamót og ekið í átt að Flúðum. Beygt er af þeim vegi inn á Miðfellsveg nokkru áður en komið er að Flúðum.
Sunnlendingar eru hvattir til að mæta og það kostar ekkert að taka þátt.