Hættu að hanga!
Ganga á Óttar
Göngunni á Óttar í Þistilfirði, sem fara átti þann 24. maí er frestað til sunnudagsins 30. maí kl. 13:30, vegna bleytu á gönguleiðinni.
Héraðssamband Þingeyinga tilnefndi Óttar í Þistilfirði í verkefnið Fjölskyldan á fjallið sem Ungmennafélag Íslands efnir til. Ferðafélagið Norðurslóð tók að sér að standa fyrir gestabókargöngu á fjallið og verður hún farin sunnudaginn 30. maí. Farið verður með póstkassa sem inniheldur gestabók upp á fjallið og fólk hvatt til að skrifa í gestabókina þegar komið er á toppinn.
Farið verður frá skilti austast á Öxarfjarðarheiði kl. 13:30. Gangan tekur um einn og hálfan tíma hvora leið, hækkun um 150 m. Þetta er fjölskylduganga, ungir og gamlir hvattir til að vera með.