Hættu að hanga!
Ferðafélag Akureyrar með ferðir á Súlur og í Ólafsfirði
Ferðafélag Akureyrar stendur fyrir tveimur ferðum um helgina. 1. maí verður farin skíða- og gönguferð á Súlur. Gangan hefst við réttina á Glerárdal og er gengið eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið. Af Súlum er afar fallegt útsýni. Ferð við flestra hæfi. Fararstjóri: Kári Árnason.
Verð: Frítt. Mæting og brottför við bílastæðið á Glerárdal kl. 9.00
Sunnudaginn 2. maí er skíða- og gönguferð í Ólafsfirði. Fararstjóri: Helga Guðnadóttir. Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000. Brottför frá FFA kl. 9.00