Hættu að hanga!
Fimmvörðuháls frá Skógum yfir í Þórsmörk með FÍ í sumar
Ferðafélag Íslands stendur fyrir göngum úr Fimmvörðuhálsi frá Skógum yfir í Þórsmörk í sumar. Ekið að morgni laugardags kl. 8 frá Mörkinni 6 að Skógum undir Eyjafjöllum og gengið yfir Fimmvörðuháls og í Þórsmörk.
Rútan flytur farangur í Langadal og sækir göngumenn þangað sem komið er niður í Bása. Gist í Skagfjörðsskála. Farið í morgungöngu á sunnudegi og haldið til Reykjavíkur um hádegi. Sameigin grillveisla um kvöldið, varðeldur og kvöldvaka.
Dagsetningar í göngurnar eru sem hér segir. 13. – 14. Júní, 27. júní -28. júní , 11. – 12. júlí, 25. – 26. júlí, 8.-9.. ágúst
Verð: 22.000/ 24.000
Innifalið: Gisting, rúta, fararstjórn og grillveisla.