Ferðir á næstunni
Viðburður
- Viðburður:
- Skíða- og gönguferð um páska á Hornströndum, 5 dagar - Ferðir FÍ
- Dagsetning:
- 01.04.2010 10.00
- Staðsetning:
- Ísafjörður -
Lýsing
Dagsetning: 1.4.2010
Brottfararstaður: Ísafjörður
Viðburður: Skíða- og gönguferð um páska á Hornströndum, 5 dagar
Erfiðleikastig: (Nokkuð langar dagleiðir)
Lýsing: Páskaferð - Hornstrandir um páska
1. - 5. apríl
Fararstjórar: Bragi Hannibalsson og Sigrún Valbergsdóttir
Hámarksfjöldi: 15
Þátttakendur koma á eigin vegum til Ísafjarðar en kl. 10 á skírdagsmorgun er farið með bát til Hesteyrar í Jökulfjörðum þar sem dvalið verður í gamla Læknisbústaðnum fram á annan í páskum. Matur borinn frá skipi og upp í hús sem þarf að vekja úr vetrardvala.
2. - 5. dagur: Stefnt er að löngum gönguferðum hvern dag, t.d. að Sléttu, að Stað í Aðalvík og í Stakkadal. Einnig á nálæg fjöll s.s. Nasa, Mannfjall og Kagrafell. Allt háð veðri og færð. Á annan í páskum er hópurinn sóttur að Hesteyri í tæka tíð fyrir kvöldflug til Reykjavíkur.
Allur matur keyptur inn sameiginlega en er ekki innifalinn í verði.
Verð: 39.000 / 44.000
Innifalið: Sigling, gisting og fararstjórn.
Staðsetning
- Brottfararstaður:
- Ísafjörður
EventList powered by schlu.net