Ferðir á næstunni
Viðburður
- Viðburður:
- Fjölskyldudagur UMFÍ
- Dagsetning:
- 05.06.2010
- Staðsetning:
- Miðfell í Hrunamannahreppi -
Lýsing
Fjölskyldudagur UMFÍ verður haldinn við rætur Miðfells í Hrunamannahreppi. Dagurinn verður haldinn í samvinnu við HSK þann 5. júní kl. 13:00 í því augnamiði að vekja athygli á verkefninu Hættu að hanga! Komdu að hjóla synda eða ganga sem og öðrum þeim góðu verkefnum sem UMFÍ hefur fram að færa á sviði almenningsíþrótta nú um stundir. Á þessum degi verður skipulögð dagskrá með skemmtiatriðum fyrir alla fjölskylduna. Meðal þess sem kemur fram á deginum er Kristmundur vinningshafi söngvakeppni framhaldskólanna, Íþróttaálfurinn og Solla stirða. Deginum líkur með göngu á Miðfell sem er eitt af tveimur fjöllum sem HSK hefur tilgreint í verkefninu Fjölskyldan á fjallið. Farið verður með póstkassa upp á fjallið á þessum degi og fólk hvatt til að skrifa í gestabókina
Staðsetning
- Brottfararstaður:
- Miðfell í Hrunamannahreppi
EventList powered by schlu.net