Ferðir á næstunni

Viðburður 

Viðburður:
Reykjanes - Gönguferðir: Þorbjörn - Bláa lónið
Dagsetning:
18.08.2010 17.00 - 23.00

Lýsing

18. ágúst.  Þorbjörn - Bláa lónið                 ***        Gengið frá A – B               Rúta

Gengið verður yfir Þorbjörn í gegnum tilkomumiklar gjár í toppi hans, komið verður niður í skógræktinni á Baðsvöllum þaðan verður gengið að orkuverinu í Svartsengi þar sem göngufólki verður boðið upp á hressingu.  Rúta fer síðan með hópinn í Bláa Lónið.

Athugið breytta tímasetningu, lagt verður af stað frá SBK kl.. 17:00.
Gangan tekur 3 – 4 klst. og síðan tekur við slökun í Bláa Lóninu.
Áætluð heimkoma kl. 23:00.

Erfiðleikastig

*   Stutt ganga, ekki mikil hækkun

**  Lengri ganga ,  einhver hækkun

***    Fjallganga,  löng ganga og hækkun

**** Löng ganga, hækkun, aðeins fyrir vant göngufólk.


------------------------------------------------------------------------------------------------------

Munið

Upphafsstaður:  SBK, Grófin 2-4.

Hvenær: miðvikudaga kl. 19:00.

Kostnaður: 1000 kr.

------------------------------------------------------------------------------------------------------

Share |
N1 oddi
website monitoring