HSH stendur fyrir göngu á Eyrarfjall og hlaupi niður Strákaskarð sunnudaginn 30. maí frá klukka 16:00-18:00. Gangan upp tekur um einn og hálfan tíma ef rólega er gengið. Siðan er hlaupið niður fjallið og er skemmsti tími 49 sekúndur, en oftast er miðað við 3 mínútur en það setur engin met í fyrstu tilraun. Ganga á Eyrarfjall hentar fjölskyldum og börnum allt niður til 4-5 ára aldurs.
Mæting er á Þórdísarstöðum.
umfi_42afe09e-e494-4ab5-b037-05c41ff343af
|
|
dagskraA5-2 |
umfi_13dccf4c-d42f-44ac-936b-cdad78940ff4Fjölskyldudagur UMFÍ verður haldinn við rætur Miðfells í Hrunamannahreppi. Dagurinn verður haldinn í samvinnu við HSK þann 5. júní kl. 13:00 í því augnamiði að vekja athygli á verkefninu Hættu að hanga! Komdu að hjóla synda eða ganga sem og öðrum þeim góðu verkefnum sem UMFÍ hefur fram að færa á sviði almenningsíþrótta nú um stundir. Á þessum degi verður skipulögð dagskrá með skemmtiatriðum fyrir alla fjölskylduna. Meðal þess sem kemur fram á deginum er Kristmundur vinningshafi söngvakeppni framhaldskólanna, Íþróttaálfurinn og Solla stirða. Deginum líkur með göngu á Miðfell sem er eitt af tveimur fjöllum sem HSK hefur tilgreint í verkefninu Fjölskyldan á fjallið. Farið verður með póstkassa upp á fjallið á þessum degi og fólk hvatt til að skrifa í gestabókina
fjolskyldudagur-full |
|
Göngunni á Óttar í Þistilfirði, sem fara átti þann 24. maí er frestað til sunnudagsins 30. maí kl. 13:30, vegna bleytu á gönguleiðinni.
Héraðssamband Þingeyinga tilnefndi Óttar í Þistilfirði í verkefnið Fjölskyldan á fjallið sem Ungmennafélag Íslands efnir til. Ferðafélagið Norðurslóð tók að sér að standa fyrir gestabókargöngu á fjallið og verður hún farin sunnudaginn 30. maí. Farið verður með póstkassa sem inniheldur gestabók upp á fjallið og fólk hvatt til að skrifa í gestabókina þegar komið er á toppinn.
Farið verður frá skilti austast á Öxarfjarðarheiði kl. 13:30. Gangan tekur um einn og hálfan tíma hvora leið, hækkun um 150 m. Þetta er fjölskylduganga, ungir og gamlir hvattir til að vera með. |
Ferðafélag Akureyrar stendur fyrir tveimur ferðum um helgina. 1. maí verður farin skíða- og gönguferð á Súlur. Gangan hefst við réttina á Glerárdal og er gengið eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið. Af Súlum er afar fallegt útsýni. Ferð við flestra hæfi. Fararstjóri: Kári Árnason. Verð: Frítt. Mæting og brottför við bílastæðið á Glerárdal kl. 9.00
Sunnudaginn 2. maí er skíða- og gönguferð í Ólafsfirði. Fararstjóri: Helga Guðnadóttir. Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000. Brottför frá FFA kl. 9.00 |
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 19 af 31 |