Útivist stendur fyrir ferð á Fimmvörðuháls þann 19. júlí. Þegar gengið er yfir Hálsinn á einum degi er brottför frá BSÍ kl.8 að morgni laugardagsins. Rúta flytur hópinn að Skógum og er gangan í megin atriðum eins og næturganga yfir Fimmvörðuhálsinn, en ekki er gist í skálanum á Hálsinum. Gengið verður á einum degi í Bása en gangan í heild sinni getur tekið 10-11 tíma og er góð þolraun en enginn ofraun sæmilega hraustum einstaklingum. Nánari upplýsingar er að finna á www.utivist.is |
|
Ekið er til Dalvíkur og gengið þaðan fram Böggvisstaðadal. Vaðið er yfir Brimnesá og gengið fram Grímudal, upp Grímubrekkur og í skarðið þar sem komið á fjallseggina. Úr skarðinu er gengið niður Kálfsárdal vestan ár og að Kálfsá. Fararstjóri: Konráð Gunnarsson. Verð: kr. 3.500 / kr. 4.500 Innifalið: Fararstjórn, akstur. Brottför kl. 8.00 |
Nýr og uppfærður vefur að ganga.is hefur verið tekinn í notkun. Nýi vefurinn hefur að geyma mun meiri og ýtarlegri upplýsingar um gönguleiðir vítt og breitt um landið. Nýtt göngukort er á síðunni auk þess sem hægt er á fá upplýsingar um veður. Á heimasíðunni ganga.is er að finna upplýsingar um 800 gönguleiðir á Íslandi ásamt áhugaverðum fróðleik fyrir göngu- og útivistarfólk. |
Nánar...
|
|
Ferðafélag Akureyrar stendur fyrir gönguferð laugardaginn 7. júní. Gengið verður frá Reykjum í Fnjóskadal um Bleiksmýrardal yfir Gönguskarð og niður í Garðsárdal að bænum Garðsá.
Fararstjóri: Roar Kvam. Verð: kr. 2.800 / kr. 3.800 Innifalið: Fararstjórn, akstur. Brottför kl. 8.00
Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins mánudaga – föstudaga kl. 16.00 – 19.00, sími 462 2720 eða í tölvupósti
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
Föstudagur, 06. júní 2008 00:00 |
Ferðafélagið og Sparisjóður Reykjavíkur standa fyrir Esjuhappdrætti þriðja árið í röð. Allir sem skrifa nafn sitt og netfang geta átt von á gönguskóm frá Cintamani. Gestabækurnir eru í póstkassa FÍ bæði við Steininn og uppi á Þverfellshorni.
Síðast liðin sumur hafa um 10.000 þúsund göngugarpar skrifað nöfn sín í gestabækur FÍ. Sparisjóður Reykjavíkur er aðalstyrktaraðili Ferðafélags Íslands. |
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 30 af 31 |