Verkefnið fjölskyldan á fjallið:
Gengið á Skarðsmýrarfjall í næstu viku
HSK mun taka þátt í verkefninu fjölskyldan á fjallið líkt og undanfarin ár, en verkefnið er nú haldið í 11. sinn. HSK hefur alltaf tilnefnt tvö ný fjöll í verkefið. Skarðsmýrarfjall í Ölfusi og Vatnsfell á Holtmannaafrétti urðu fyrir valinu í ár.
HSK mun standa fyrir fjölskyldugöngu á Skarðsmýrarfjall miðvikudaginn 30. maí nk. Mæting er við Skíðaskálann í Hveradölum kl. 19:00 og þaðan verður sameinast í bíla. Göngustjóri verður Björn Pálsson í Hveragerði. Fyrir gönguna gefst göngufólki tækifæri á að skoða Hellisheiðarvirkjun.
Skarðsmýrarfjall er tæpir 597 metrar á hæð og er á norðanverðri Hellisheiði. Svæðið norðan og austan við heitir Hengilssvæðið og hefur upp á mjög áhugavert landslag að bjóða. Náttúrufar er fjölbreytt, hvera og gígasvæði, ár og stöðuvötn og fjölbreytt gróðurfar. Hengilssvæðið er meðal stærstu háhitasvæða á Íslandi.
HSK gangan á Vatnsfall verður síðan laugardaginn 16. júní og verður nánar greint frá þeirri göngu hér í Sunnlenska þegar nær dregur.