Hættu að hanga!
Allir velkomnir í göngu hjá UMSB
Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) stendur fyrir göngu á Strút, stefnt er á að hittast við afleggjarann upp á Arnarvatnsheiði, fyrir ofan Kalmanstungu, kl. 20.00 á fimmtudaginn 7. júlí. Þar verður svo ákveðið eftir mætingu og sennilega veðri og vindum hvaðan verður raunverulega gengið.
Einnig mun UMSB standa fyrir skógargöngum sem auglýstar verða síðar. Þeir skógar sem gengið verður um eru: skógarreitinn á Lundi ásamt skógarreitnum við gamla félagsheimili Umf. Dagrenningar, í Skóginum við Fannahlíð og svo í Skorradal.
Allir eru velkomnir í þessar göngur.