Þriðjudaginn 14. desember tóku nemendur Hvanneyrardeildar Grunnskóla Borgarfjarðar við verðlaunum fyrir þátttöku í Grunnskólagöngu UMFÍ. Eftir að þau höfðu fengið sínar viðurkenningar var ein þeirra leiða sem nemendur höfðu kortlagt gengin.
Miðvikudaginn 15. desember var grunnskólinn Laugalandsskóli í Holtum verðlaunaður. Þar var það 6. bekkur skólans sem útbjó gönguleið í nágreni síns skóla.
Grunnskólagangan er verkefnið í tengslum við átakið Hættu að hanga! Komdu út að hjóla, synda eða ganga sem var í sumar.
Markmið Grunnskólagöngu UMFÍ er að vekja grunnskólabörn til umhugsunar um þær gönguleiðir sem eru í nágrenni síns skóla sem og í sveitarfélaginu. Hægt er að nálgast upplýsingar um gönguleiðir í sveitarfélaginu á vefnum ganga.is undir reitnum ,,göngukort“. Nemendurnir vinna verkefni sem felst í því að nemendur vinni í hópum að því að finna nýjar gönguleiðir, sem ekki er að finna á vefnum ganga.is, í nágrenni skólans eða í viðkomandi sveitarfélagi. Nemendurnir taka myndir af leiðinni, tímamæla hana og gera stutta lýsingu á henni. Þegar hópurinn hefur lokið verkefninu senda þeir upplýsingarnar ásamt mynd af hópnum sem vann að verkefninu á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . UMFÍ mun senda skólunum skilti sem setja á niður við skólann að auki fær hver hópur viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Allar þær gönguleiðir sem nemendur skila inn til UMFÍ verða settar inn á vefinn ganga.is undir nafni viðkomandi skóla.
Hægt er að útfæra verkefnið þannig að margir kennarar koma að því. Stærðfræðikennarinn getur séð um að láta krakkana mæla leiðina sem og leist önnur verkefni, Íslensku kennarinn getur séð um frásögn á gönguleiðinni svo getur íþróttakennarinn notað leiðina sem lið í sinni kennslu svo dæmi séu tekin.
Efri myndin er frá Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar neðri myndin er frá Laugalandsskóla í Holtum