Grunnskólaganga UMFÍ
Ákveðið hefur verið að ljúka almenningsíþróttaverkefni sumarsins á vegum UMFÍ „Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda og ganga“ á „Grunnskólagöngu UMFÍ“. Markmið göngudagsins er að vekja grunnskólabörn til umhugsunar um þær gönguleiðir sem eru í nágrenni síns skóla sem og í sveitarfélaginu. Hægt er að nálgast upplýsingar um gönguleiðir í sveitarfélaginu á vefnum ganga.is undir reitnum ,,göngukort“. Fyrirhugað er að nemendur hafi áður en að göngudeginum kemur, unnið verkefni sem felst í því að nemendur vinni í hópum að því að finna nýjar gönguleiðir, sem ekki er að finna á vefnum ganga.is, í nágrenni skólans eða í viðkomandi sveitarfélagi. Nemendurnir taka myndir af leiðinni, tímamæla hana og gera stutta lýsingu á henni. Þegar hópurinn hefur lokið verkefninu senda þeir upplýsingarnar ásamt mynd af hópnum sem vann að verkefninu á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . UMFÍ mun senda skólunum skilti sem setja á niður við upphaf hverrar gönguleiðar og þar að auki fær hver hópur viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Allar þær gönguleiðir sem nemendur skila inn til UMFÍ verða settar inn á vefinn ganga.is undir nafni viðkomandi skóla. Dagana 8. – 15. september geta skólarnir valið einn dag til að ganga þá gönguleið sem þeir gerðu grein fyrir.
Verkefnið í hnotskurn
Verkefni fyrir grunnskólabörn:
- Nemendur vinna í hópum við að finna gönguleið í nágrenni skólans eða sveitarfélaginu sem ekki er á ganga.is
- Nemendur taka nokkrar myndir af gönguleiðinni
- Nemendur tímamæla hve lengi þau eru að ganga leiðina
- Tekin er mynd af þeim hópum sem taka þátt í verkefninu
Ávinningur af þátttöku í verkefninu:
- Leiðin verður sett inn á vefinn ganga.is undir nafni viðkomandi skóla
- Bestu verkefnin verða sett í göngubók sem gefin er út árlega af UMFÍ
- UMFÍ mun setja skilti við upphaf gönguleiðarinnar
- Hópur sem sendir inn gönguleið fær viðurkenningu frá UMFÍ