Nú í sumar, nánar tiltekið dagana 29. júní til 5. júlí 2008, mun Dalvíkurbyggð í samvinnu við Kristján Eldjárn Hjartarson á Tjörn standa fyrir gönguviku um fjöll og firnindi í Dalvíkurbyggð. Fyrirkomulag gönguvikunnar verður þannig háttað að föstudagskvöldið 27. júní verður Kristján með kynningu á ýmsum gönguleiðum í sveitarfélaginu og fer jafnframt yfir þær leiðir sem fyrirhugað er að ganga í framhaldinu. Einnig mun hann fara yfir hvernig búnað væri gott að hafa með sér í slíkar gönguferðir. Gönguleiðirnar eru valdar með það í huga að flestir ættu að finna sér ferð við hæfi, og fólk getur valið að fara bara eina ferð upp í að fara þær allar.
1. ferð 29. júní. Gengið Vikið klukkan 11:00. Gengið frá Sauðárkoti í Ólafsfjarðarmúla upp í Sauðdal sem er stuttur en ákaflega fallegur smádalur, girtur háum og tígurlegum hnjúkum allt um kring og með sjálfan Kerahnjúk í öndvegi. Áætluð lengd ferðar 5 klst.
2. ferð 30 júní. Gengið að Nykurtjörn klukkan 11:00. Nykurtjörn liggur í um 700 m hæð, beint upp af bænum Brekku í Svarfaðardal. Hægt er að fara margar ólíkar leiðir upp að tjörninni, en við munum fara hina stikuðu leið sem hefst við bæinn Steindyr, sem er í um 10 km fjarlægð frá Dalvík, í Svarfaðardal vestanverðum. Áætluð lengd ferðar 7 klst.
3. ferð 1. júlí. Gengið að Skeiðsvatni klukkan 11:00. Vatnsdalur gengur suður úr Svarfaðardal framanverðum, milli bæjanna Kots og Skeiðs. Þetta er fallegur og grösugur dalur, sem ber nafn sitt af stöðuvatni inni á dalnum sem heitir Skeiðsvatn. Farið er frá Koti innsta bæ í Svarfaðardal. Áætluð lengd ferðar 3 klst.
4. ferð 2. júlí. Gengið upp í Gloppuskál klukkan 11:00. Ferðin hefst við brúna yfir Þverá í Skíðadal. Gengið er upp Kóngstaðarhlíðina sem er viði vaxin og áfram upp Kóngstaðahálsinn. Áætluð lengd ferðar 5 klst.
5. ferð 3. júlí. Gengið að Steinboga og inn að Gljúfrárjökli klukkan 11:00. Lagt er upp frá göngubrúnni yfir Holá nokkru framan við Klængshól og gengið fram Holárafrétt með stefnu á Heiðinnamannafjall, því að í öxl þess fjalls er einmitt þessi merkilega náttúrusmíð, Steinboginn. Áætluð lengd ferðar 5 klst
6. ferð 4. júlí. Gengið á Hvarfshnjúk klukkan 11:00. Farið upp frá Hofi í Svarfaðardal, gengið upp með Hofsá upp að Goðafossi, áfram inn Hofsdal með fjallið Rimar á vinstri hönd. Áætluð lengd ferðar 8 klst.
7. ferð 5. júlí. Farið upp í Garnir og upp á Sólarfjall klukkan 19:00. Stefnt er að því að þessi ganga verði miðnæturganga og að við verðum upp á Sólarfjalli á miðnætti, böðuð miðnætursólinni. Upphaf ferðar er frá minnismerki um séra Friðrik Friðriksson við bæinn Háls. Áætluð lengd ferðar 6 klst.
5. júlí. Þorvaldsdalsskokkið, elsta skipulagða óbyggðahlaup á Íslandi. Lagt er upp frá Fornhaga í Hörgárdal og markið er við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd. Vegalengdin er um 25 kílómetrar og er bæði boðið uppá göngu undir leiðsögn Bjarna E. Guðleifssonar náttúrufræðings og hlaupakeppni en gangan mun hefjast kl. 9:00 og hlaupið kl. 12:00. Áætluð lengd göngunnar er 6 klst.
Nánari upplýsingar um gönguviku og leiðalýsingar er á www.dalvik.is